Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Um útgáfu Lögbirtingablaðs gilda lög um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað nr. 15/2005.

Í Lögbirtingablaði skal birta dómsmálaauglýsingar, svo sem stefnur til dóms, úrskurði um töku búa til opinberra skipta og áskoranir um kröfulýsingar, auglýsingar um skiptafundi og skiptalok þrotabúa, nauðungarsölur, þar á meðal á fasteignum búa sem eru til opinberra skipta, auglýsingar um vogrek, óskilafé og fundið fé, auglýsingar um kaupmála hjóna, lögræðissviptingu og brottfall hennar, lögboðnar auglýsingar um félög og firmu, sérleyfi er stjórnvöld veita, opinber verðlagsákvæði og annað það er stjórnvöldum þykir rétt að birta almenningi.

Vegna athugsemda Persónuverndar og meðan nýtt útgáfukerfi fyrir Lögbirtingablaðið er í smíðum hefur verið tekið fyrir leit í blaðinu í auglýsingaflokkum, sem varða fjárhagsmálefni einstaklinga og fyrirtækja, nema eftir útgáfudagsetningum og útgáfutímabilum. Nýtt útgáfukerfi verður væntanlega tekið í notkun síðar í sumar en í því mun leit einnig verða takmarkaðri en verið hefur.
Þeir flokkar sem sæta þessari takmörkuðu leit eru: Innkallanir, greiðsluaðlögun, greiðsluáskorun, nauðasamningar, nauðungarsala, skiptafundur, veðhafafundur, skiptalok, stefnur, svipting fjárræðis og kaupmáli, framhald uppboðs

Gerast rafrænn áskrifandi
Gerast áskrifandi að pappírsútgáfu
Um Lögbirtingablað
Síðan virkar best í Internet Explorer 7+